Saga
Saga
"Það sem ég fékk út úr Dale Carnegie námskeiðinu var þrefalt meira sjálfstraust! Ég hafði lítið sem ekkert sjálfstraust en núna lít ég á sjálfa mig alveg eins og ég lít á annað fólk með jákvæðni og opnum huga.
Það sem ég lærði á námskeiðinu var að maður á alltaf að láta viðkomandi finnast hann skipta máli:) Maður á alltaf að hlusta á það sem aðrir segja og virða þeirra skoðanir þó að þú sért ekkert endilega sammála þarft þú ekkert alltaf að segja það. Stundum er gott að hafa sumt út af fyrir sig.
Ég var vön að verða rosa fúl strax og er svolítið skapvond manneskja þegar mér ofbýður einhvað ;)! En núna passa ég mig og kvarta miklu minna.... maður kemst nefnilega ekkert áfram í lífinu með því að vera alltaf fúll og skapvondur;) borgar sig bara að brosa og horfa á björtu hliðarnar og taka því sem fyrir hendi ber;)!!"

"Á námskeiðinu lærði ég mikið um mannleg samskipti og að tala fyrir framan hóp af fólki.




