Sigrún - mamma Kolbeins og Sifjar

Sigrún - mamma Kolbeins og Sifjar

Sigrún"Kolbeinn tjáði sig ekki mikið um tilfinningar og var feiminn og óframfærinn. Ég vildi að hann fengi meiri trú á sjálfan sig. Mér finnst hann strax sýna okkur foreldrum og fjölskyldu meiri áhuga og hlýju. Hann hlustar og spjallar með meiri áhuga. Svo er hann enn að læra og les bækurnar sem hann fékk á námskeiðinu og er góður og duglegur strákur sem við erum mjög stolt af.

Eftir námskeiðið er Sif farin að hlusta betur er þolinmóðari og gefur sér meiri tíma með okkur foreldrunum. Hún var mjög spennt að fara á námskeiðið til að vera öruggari og geta haldið ræður. Sif var mjög ánægð og geislar af lífsgleði. Það er ekkert sem stoppar hana."

Umsagnir

Arnar Már

Arnar Már"Ég var aðeins búinn að vera á námskeiðinu í nokkra tíma þegar ég sá að það átti mjög vel við mig enda er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um dagana.Lesa meira... 
Borði
Styrktaraðilar
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði