Anna Guðrún Steinsen

Anna Guðrún Steinsen

Anna GuðrúnAnna er með B.A. í tómstunda- og félagsmálafræðum frá Kennaraháskóla Íslands.
Anna hefur unnið með unglingum í Félagsmiðstöðinni Árseli frá árinu 2000 - 2005 sem skólavinur og tómstundaleiðbeinandi.

Í janúar árið 2003 fór hún með hóp af unglingum til Austurríkis í ungmennaskipti á vegum UFE (Ungt fólk í Evrópu). Markmið ferðarinnar var m.a. hvernig hægt er og má vinna gegn kynþáttafordómum.
Anna hefur kennt félagsmálafræði í 9. og 10. bekk í Árbæjarskóla, tjáningu í Menntaskólanum Hraðbraut og starfaði sem heilsuráðgjafi hjá femin.is í fjögur ár.
Anna hefur lagt stund á íþróttir frá unga aldri (handbolta, fótbolta og badminton) og hefur m.a. æft og spilað fótbolta og handbolta með meistaraflokki KR og handbolta með meistaraflokki Vals, ásamt því að hafa verið í unglingalandsliði í badminton, handbolta og fótbolta.

Anna er forstöðumaður Næstu kynslóðar.


Samkvæmt loftfræðilegu lögmáli ætti býflugan ekki að geta flogið. En býflugan veit þetta ekki og flýgur um allt:)

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Umsagnir

Arnar Már

Arnar Már"Ég var aðeins búinn að vera á námskeiðinu í nokkra tíma þegar ég sá að það átti mjög vel við mig enda er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um dagana.Lesa meira... 
Borði
Styrktaraðilar
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði