Um okkur
Um okkur
Það var árið 1912 sem Dale Carnegie hélt sitt fyrsta námskeið. Upphaflega var námskeiðið hugsað sem ræðunámskeið en þróaðist smátt og smátt í námskeið sem hjálpaði fólki að efla sjálfstraust, bæta mannleg samskipti og vinna á áhyggjum og kvíða. Í kringum námskeiðið byggði Dale Carnegie upp, ásamt konu sinni Dorothy Carnegie, fyrirtæki sem nú teygir anga sína í yfir 70 lönd og hefur rúmlega 120 skrifstofur. Með árunum hefur Dale Carnegie námskeiðið breyst gríðarlega. Meiri áhersla er nú lögð á markmiðasetningu og að efla leiðtogahæfileika fólks. Þetta hefur gert það að verkum að mörg af stærstu fyrirtækjum heims senda reglulega fólk í gegnum Dale Carnegie námskeiðið. Til dæmis hafa rúmlega 5.000 starfsmenn General Electric farið í gegnum þjálfun Dale Carnegie. Í dag er Dale Carnegie leiðandi fyrirtæki í þjálfun starfsfólks fyrirtækja út um allan heim og býður alhliða þjálfun í stjórnun og sölumennsku. Hjá fyrirtækinu starfa um 2.700 leiðbeinendur.
Dale Carnegie námskeiðið var haldið á Íslandi í fyrsta skipti árið 1965. Það var viðskiptafræðingurinn Konráð Adolphsson sem fékk einkaleyfi frá Dale Carnegie í Bandaríkjunum og hefur hann útskrifað rúmlega 8.000 manns á Íslandi á þessu tímabili. Á Íslandi hefur verið boðið upp á Dale Carnegie námskeiðið, sölunámskeið og leiðtogaþjálfun fyrir stjórnendur; einnig hefur verið boðið upp á styttri námskeið með jöfnu millibili. Á haust dögum 2001 tók Helgi Rúnar Óskarsson við rekstri Dale Carnegie á Íslandi. Síðan hefur fyrirtækið vaxið jafnt og þétt. Þjálfurum okkar fjölgar stöðugt til að mæta ört vaxandi eftirspurn. Jafnframt hafa smátt og smátt verið kynnt ný námskeið sem verið hafa í þróun hjá Dale Carnegie erlendis og hafa þau námskeið fengið mjög góðar viðtökur.
Núverandi eigandi Dale Carnegie á Íslandi er Unnur Magnúsdóttir.
ISO vottun
Dale Carnegie er ISO 9000:2001 vottað fyrirtæki. Sá heiður krefst þess að við mælum árangur okkar þjálfunar markvisst. Öll námskeið um allan heim eru metin eftir samskonar kvarða. Samkvæmt þeim kvarða eru 99% þátttakenda á námskeiðum okkar ánægð með þjálfunina.
Í flestum ríkjum Bandaríkjanna er Dale Carnegie námskeiðið metið til námseininga í mennta- og háskólum. Unnið er að því að fá námskeiðin metin á sama hátt hér á Íslandi.

"Ég var aðeins búinn að vera á námskeiðinu í nokkra tíma þegar ég sá að það átti mjög vel við mig enda er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert um dagana.




