21-25 ára
21-25 ára
Allt í kringum þig eru einstaklingar sem skara fram úr. Í viðskiptalífinu, íþróttum, fjölmiðlum, skólastarfi, á sviði menningar og lista eða einfaldlega sem sterkir persónuleikar. Fjölmargir þeirra hafa sótt Dale Carnegie‚ námskeiðið og um fimm milljón einstaklingar um heim allan hafa lokið námskeiðinu. Þú getur slegist í hóp þeirra sem eru stöðugt að auka velgengni sína.
Langar þig að öðlast sjálfstraust og hugsun sigurvegarans, eflast við hverja raun og vinna markvisst að því að draumar þínir rætist? Þráir þú að ná markmiðum þínum í vinnunni og einkalífinu á auðveldan og skipulagðan hátt? Þú getur skapað þína eigin velgengni í stað þess að efast um eigið ágæti og líta þá öfundaraugum sem ná árangri í lífinu. Þú getur orðið leiðtogi á öllum sviðum og haft stjórn á áhyggjum og streitu. Þér standa allir vegir færir. Ef þú vilt!
5 drifkraftar velgengninnar
Á Dale Carnegie námskeiðinu gefst þér kostur á að byggja upp hæfileika þína á fimm sviðum. Þetta eru í raun drifkraftar velgengninnar og markmið námskeiðsins er að:
1) Efla sjálfstraustið
2) Bæta hæfni í mannlegum samskiptum
3) Efla tjáningarhæfileikana
4) Þróa leiðtogahæfileika
5) Bæta lífsviðhorf okkar

"Hvað hef ég lært á þessu námskeiði? Spurðu frekar hvað ég hef ekki lært! Það er margt ómetanlegt sem ég hef fengið út úr námskeiðinu.




