Námskeiðið Næsta kynslóð

Námskeiðið Næsta kynslóð

Þjálfunin byggist upp á hvatningu, hrósi og jákvæðni.

Það skiptir miklu máli að hafa jákvætt viðhorf á námskeiðinu því með réttu viðhorfi erum við tilbúin til þess að ná árangri.

Á námskeiðinu öðlist þið þekkingu sem þið getið nýtt ykkur til þess að ná árangri.

Við þjálfum ykkur á þann hátt að þið getið notað þessa þekkingu í raunverulegum aðstæðum í lífinu.

Þegar viðhorfið, þekkingin og þjálfunin er komin þá öðlist þið hæfni til að ná tímamótaárangri.

Öll okkar þjálfun byggir á virkri þátttöku í stað fyrirlestra. Þátttakendur taka mikinn þátt og leysa skemmtileg og krefjandi verkefni.

Verkefnin, sem eru þaulprófuð af milljónum þátttakenda, eru hagnýt og nýtast því fólki strax á meðan á þjálfuninni stendur.

Sú staðreynd að nánast öll þjálfun sem er í boði hjá Dale Carnegie stendur yfir í nokkrar vikur tryggir að fólk fær nægan tíma til að öðlast hæfni á mörgum mismunandi sviðum.

Þjálfun þátttakenda byggist á jákvæðni. Jákvæð hvatning hefur góð áhrif á fólk sem er að læra nýja hluti og hjálpar þeim að ná tímamótaárangri í lífinu. Í stuttu máli fyllir þjálfunin fólk krafti til að stíga út úr þægindahringnum og setja sér og ná metnaðarfullum markmiðum.

Umsagnir

Erla Ósk

Erla Ósk"Þetta námskeið hjálpaði mér að láta fólk hlusta á mig og taka mark á mér.Lesa meira... 
Borði
Styrktaraðilar
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði