Námskeið fyrir ungt fólk

Námskeið fyrir ungt fólk

"Hæfni á tilfinningasviði er enn mikilvægari en uppvaxtarskilyrði og efnahagsleg kjör. Hún getur skorið úr um það hvort barn eða unglingur lætur slíka erfiðleika buga sig eða finnur þá innri seiglu sem þarf til að yfirstíga þá?"
- Daniel Goleman, 2000.


Í hinu daglega lífi standa unglingar frammi fyrir miklum kröfum frá umhverfinu. Þau þurfa að standa sig vel í skólanum, vera samvinnuþýð, geta unnið í hópum og geta tekið ábyrgar ákvarðanir. Þau þurfa að passa sig á vímuefnum, standast fjölmiðla og markaðsáhrif, hafa sjálfstæðar skoðanir, leggja sitt af mörkum til fjölskyldunnar, ávinna sér félagslega og jafnvel verklega hæfni og læra siðferðileg gildi.

Ofan á allt þetta búa unglingar, margir hverjir, því miður, við erfiðar og ruglingslegar heimilisaðstæður, hraða, tímaskort og jafnvel mikla ábyrgð.

Nýtt námskeið
Til að hjálpa unglingum að takast á við þættina hér að ofan hefur Dale Carnegie þjálfun sett upp námskeiðið Næsta kynslóð fyrir ungt fólk. Námskeiðið hefur nú verið í boði í mörgum ólíkum löndum og hefur árangurinn verið framúrskarandi góður.

Það skiptir ekki máli hvar í heiminum ungt fólk elst upp, áskoranirnar eru oft á tíðum þær sömu. Til að mæta þessum áskorunum er mikilvægt að unglingar hafi gott sjálfstraust, kunni að setja sér markmið, hafi jákvætt hugarfar, kunni að vinna í hópum, geti tjáð sig af öryggi og tekist á við ábyrgð og það álag sem oft skapast í nútímaumhverfi. Á námskeiðinu Næsta kynslóð er unnið að því að koma til móts við þessar kröfur.

Þjálfunin er í 10 skipti, einu sinni í viku í 4 klt. í senn. Yfirleitt eru námskeiðin frá kl.17-21 (14-17 ára) og kl.18-22 (18-22 ára).

Verð og greiðsluskilmálar
Verð á Dale Carnegie námskeiðinu fyrir fullorðna er kr. 149.900 en verðið á unglinganámskeiðinu er kr. 94.900.

Hægt er að nota frístundarkortið og aðra styrki frá bæjarfélögum. Við bjóðum upp á greiðsludreifingu í allt að 3 mánuði vaxtalaust (léttgreiðslur) með 2% lántökugjaldi. Einnig bjóðum við upp á raðgreiðslur með vöxtum í allt að 36 mánuði.

Kostar álíka og gosdrykkur og súkkulaðistykki í 10 mánuði.
Gosflaska og súkkulaði kosta í kringum 300 kr. Ef þú kaupir eina gos og eitt súkkulaði á dag í tíu mánuði kostar  álíka og þjálfunin.

"Fyrstu tækifærin til að læra áhrifaríka forystuhæfileika eru á unglingsárum og fram yfir tvítugt. Á því tímabili heldur heilinn, það líffæri sem síðast þroskast í líkamanum, áfram að leggja frumtaugabraut fyrir tilfinningavenjurnar. Ungar manneskjur sem vinna að því að ná tökum á einhverri námsgrein, tilheyra einhverjum hópi eða hafa tækifæri til að þjálfa með sér færni í að tala á opinberum vettvangi eru að smíða sér eins konar vinnupall fyrir taugafrumurnar sem síðar á ævinni mun verða þeim mikilvægur stuðningur í forystu. Það sem lærist svo snemma eflir hæfnisvið eins og sjálfstjórn og marksækni, samstarfshæfni og sannfæringakraft." (Goleman 2004)

Umsagnir

Fjóla

Fjóla"Hvað hef ég lært á þessu námskeiði? Spurðu frekar hvað ég hef ekki lært! Það er margt ómetanlegt sem ég hef fengið út úr námskeiðinu.Lesa meira... 
Borði
Styrktaraðilar
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði