Fyrir foreldra
Rannsókn á Næstu kynslóð í Garðabæ
Síðastliðin 2 ár hefur sveitarfélagið Garðabær boðið 14-16 ára unglingum í bænum upp á að taka þátt í námskeiðum Dale Carnegie fyrir ungt fólk sem nefnist Næsta kynslóð. Markmið námskeiðanna er að efla sjálfstraust unglinganna, bæta samskiptahæfileika þeirra, þjálfa ungmennin með markvissum hætti í árangursríkri tjáningu, byggja upp leiðtogahæfileika þeirra, hjálpa þeim að tileinka sér jákvætt viðhorf og að setja sér hnitmiðuð markmið.
Rannsókn á líðan þátttakenda
Gerð var rannsókn á líðan þátttakenda (14-17 ára) sem fóru á námskeið í október 2006. Hér fyrir neðan eru helstu niðurstöður:Sjálfstraust
Niðurstöður sýna fram á að þátttakendur bættu sjálfstraustið, höfðu meiri trú á sjálfum sér, hrósuðu sér meira og spáðu minna í hvað öðrum finnst um þá.
Námskeið fyrir ungt fólk
"Hæfni á tilfinningasviði er enn mikilvægari en uppvaxtarskilyrði og efnahagsleg kjör. Hún getur skorið úr um það hvort barn eða unglingur lætur slíka erfiðleika buga sig eða finnur þá innri seiglu sem þarf til að yfirstíga þá?"
- Daniel Goleman, 2000.

"Mér fannst námskeiðið frábært, það nýtist allt lífið. Þjálfararnir voru ungir og skemmtilegir og krakkarnir einlægir og opnir. Þetta á eftir að koma sér vel í lífinu sama hvert maður stefnir.




